Fréttir

Stofnun ársins 2016

11 maí. 2016

Á morgun, fimmtudaginn 12. maí, fer fram í Silfurbergi í Hörpu kynning SFR og StRv á niðurstöðum hinnar árlegu könnunar um Stofnun ársins.  Könnunin er unnin í samvinnu við efnahags- og fjármálaráðuneytið og VR.

 

Niðurstöður könnunarinnar, varðandi lögregluembættin í landinu, verður birt hér á heimasíðu LL um leið og þær verða aðgengilegar opinberlega, líkt og gert hefur verið undanfarin ár.

 

Út úr könnuninni geta forstöðumenn stofnana hins opinbera m.a. lesið eftirfarandi:

Hver er besti yfirmaðurinn? 

Hvar er besti vinnuandinn?

Hvar er besta vinnuaðstaðan?

Hvað finnst fólkinu þínu í raun og veru?

Til baka