Fréttir

Sálrænn stuðningur við viðbragðsaðila – ráðstefna

12 okt. 2016

Allir viðbragðsaðilar í neyðarþjónustu upplifa erfið útköll og þeim fylgja stundum áskoranir sem geta dregið dilk á eftir sér í formi andlegrar vanlíðunar.  Það er því mikilvægt að hlúð sé vel að sálrænum stuðningi þessa hóps.

Dagana 2. – 4. nóvember munu Landssamband Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Landssamband Lögreglumanna, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Neyðarlínan 112, Landhelgisgæslan, Rauði Kross Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Sálfræðingarnir Lynghálsi standa að ráðstefnu og vinnustofum um þessi málefni sem ber heitið „Sálrænn stuðningur við viðbragðsaðila í neyðarþjónustu.“ Ráðstefnustjóri er María Ellingsen.

 

Ásamt innlendum mannauði í þessum málum; Dr. Berglindi Guðmundsdóttur, Dr. Sigríði Björk Þormar, Jóhanni Thoroddsen, Ólafi Erni Bragasyni, Njáli Pálssyni og Hjördísi Guðmundsdóttur munu fjórir erlendir sérfræðingar koma og flytja fyrirlestra og stýra vinnustofum.  Á meðal þeirra er Dr. Stevan Hobfoll sem telst einn helsti sérfræðingur í heimi á uppbyggingu sálræns stuðnings og vinna flest mannúðarsamtök s.s. Alþjóða Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn eftir fimm grundvallarmarkmiðum Hobfolls.  Það er okkur einstakur heiður að njóta þekkingar hans á þessari ráðstefnu.

Ráðstefnan er haldin þann 3. nóvember og er boðið uppá vinnustofur 2. og 4. nóvember.  Skráning á ráðstefnuna og nánari upplýsingar um vinnustofur er að finna á netinu undir: www.salfraedingarnir.is


Landssamband lögreglumanna hefur tryggt sér nokkra miða á ráðstefnuna þann 3. nóvember, sem standa til boða félagsmönnum, sem áhuga hafa á og koma að t.d. félagastuðningi.  Hægt er að nálgast miðana á skrifstofu LL.

Til baka