Fréttir

Stofnun ársins 2017 – niðurstöður

11 maí. 2017

FImmtudaginn 10. maí s.l. kynntu SFR og StRv niðurstöður sínar úr könnuninni Stofnun ársins 2017 á hótel Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2.  Eins og áður hefur komið fram hafa kannanir þessar verið unnar á hverju ári frá árinu 2006.  Undanfarin ár hafa þær verið unnar í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið þ.a. öllum ríkisstarfsmönnum á að gefast kostur á því að svara spurningunum í könnuninni.

 

Það er ánægjulegt að skýra frá því að lögreglan í Vestmannaeyjum fékk sérstaka viðurkenningu á verðlaunaafhendingunni sem hástökkvari ársins!

 

Niðurstöður fyrir allar ríkisstofnanir er hægt að nálgast á heimasíðu SFR (www.sfr.is) en röðun lögregluembættanna, ásamt sýslumannsembættum, í sæti á heildarlistanum er eins og fram kemur í töflunni hér að neðan, með samanburði allt aftur til ársins 2012 (stofnanirnar eru í stafrófsröð á listanum):

 

Löggæslustofnun 2012 2013 2014 2015 2016 2017
Lögreglan á Austurlandi 101 ***  90
Lögreglan á Norðurlandi Eystra *** 105 121
Lögreglan á Norðurlandi Vestra *** *** ***
Lögreglan á Suðurlandi 68 101 76
Lögreglan á Vestfjörðum 45 51 81
Lögreglan í Vestmannaeyjum *** 95 24
Lögregluskóli ríkisins 16 74 134 ***
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu 165 143 137 145 141 147
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum 90 48 81 72 128 145
Ríkislögreglustjórinn 161 118 135 100 70 82
Sérstakur saksóknari / Héraðssaksóknari 5 8 14 35 92 59
Sýslumaðurinn á Akranesi 10 12 10 * *
Sýslumaðurinn á Akureyri 166 149 141 * *
Sýslumaðurinn á Austurlandi 68
Sýslumaðurinn á Blönduósi 76 97 29 * *
Sýslumaðurinn í Borgarnesi  8 44 47 * *
Sýslumaðurinn á Eskifirði 172 140 138  * *
Sýslumaðurinn á Húsavík 27 20 11  * *
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli 53 21 9 * *
Sýslumaðurinn á Ísafirði 49 18 22 * *
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 20
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra 48
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki 7 21 * * – 
Sýslumaðurinn á Selfossi 149 135 114 * * – 
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 130
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði 24 87 79 * *
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 138
Sýslumaðurinn á Vesturlandi 106
Sýslumaður Snæfellinga 69 77 30 * *
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 110 68 32 * * 36

 

*** = svarhlutfall of lágt þ.a. niðurstöður fyrir stofnunina eru ekki birtar opinberlega.

 

 

LL áréttar sem fyrr mikilvægi þess að allir lögreglumenn taki þátt í könnunum sem þessum, sem og öðrum könnunum sem þeim er boðin þátttaka í og varða störf þeirra en niðurstöður slíkra kannana eru m.a. notaðar í viðræðum við viðsemjendur LL í tengslum við úrbætur í starfsmannamálum, aðbúnaði, öryggi og hollustuháttum, kjaramálum o.fl. 

Til baka