XXXIV þing LL 2018
8 des. 2017
Á 843 fundi sínum þann 21. nóvember 2016, ákvað stjórn LL að XXXIV þing LL skyldi haldið dagana 23. – 25. apríl 2018. Staðsetning þingsins liggur ekki enn fyrir en upplýsingar þ.a.l. munu verða birtar hér á heimasíðu LL um leið og ákvörðun hefur verið tekin um þingstað.
Allar nánari upplýsingar um störf þingsins, val þingfulltrúa o.fl. er að finna í lögum og þingsköpum LL.
Líkt og segir í lögum LL (20. gr.) skal kjör formanns LL fara fram í janúar sama ár og þing er haldið. Formaður er kosinn í allsherjar póst- eða netkosningu meðal félagsmanna LL. Frestur til að skila inn framboðum til formanns er til 15. desember í aðdragandi þingárs. Skulu þeir sem hyggjast gefa kost á sér til formanns láta kjörstjórn LL vita bréflega (á skrifstofu LL) eða með tölvupósti á netfangið ll@bsrb.is.