Fréttir

Meira vinnur vit en strit – vefráðstefna Vinnueftirlitsins

16 nóv. 2020

Vefráðstefna Vinnueftirlitsins „Meira vinnur vit en strit“ verður haldin fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi.

Ráðstefnan er liður í tveggja ára samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, félagsmálaráðuneytisins, samtaka aðila vinnumarkaðarins og VIRK sem ber yfirskriftina „Vinnuvernd er allra hagur.  Hæfilegt álag – heilbrigt stoðkerfi 2020-2022, “ en verkefnið er keyrt samhliða samnefndu vinnuverndarátaki Vinnuverndarstofnunar Evrópu (EU-OSHA).

Áherslan kemur til af því að stoðkerfisvandi er algengasta orsök fjarvista frá vinnu í Evrópu og ein algengasta orsök örorku.

Markmið ráðstefnunnar er að varpa ljósi á þann víðtæka stoðkerfisvanda sem vinnandi fólk glímir við og benda á lausnir.

  • Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ávarpar ráðstefnuna.
  • Lykilfyrirlesari er Andreas Holtermann, hjá Dönsku rannsóknarstofnuninni í vinnuvernd en erindi hans ber yfirskriftina „From non-harmful work to healthy work – what would it take?
  • Ráðstefnustjóri er Gunnhildur Gísladóttir, sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu.  Nánari dagskrá má finna á vef Vinnueftirlitsins.

Ráðstefnan stendur frá klukkan 13.00 – 15.55 og verður streymt beint af vef Vinnueftirlitsins.  Streymið má jafnframt nálgast í gegnum viðburð á facebook-síðu Vinnueftirlitsins eða í gegnum meðfylgjandi slóð: http://tiny.cc/vinnueftirlit

Ráðstefnan er opin öllum en hægt er að fylgjast með fréttum og skrá sig til þátttöku á facebook til að fá áminningu áður en hún hefst.

 

 

Til baka