Fréttir

Betri vinnutími í vaktavinnu byggir á rannsóknum

13 jan. 2021

Á vefsíðunni Betri vinnutími er gríðarlegan fróðleik að finna um þá vinnu og þekkingu sem aflað hefur verið vegna styttingar vinnuvikunnar, sbr. hér að neðan:

„Vísindamenn hafa lengi rannsakað áhrif vinnutíma á starfsfólk.  Þekkingunni á áhrifum vinnutíma á öryggi, heilsu og jafnvægi vinnu og einkalífs hefur fleygt fram á undanförnum árum.

Við gerð fylgiskjals, sem betri vinnutími í vaktavinnu byggir á, var rýnt í fjölda rannsókna á áhrifum vinnutíma á starfsfólk.  Kerfisbreytingin í heild sinni tekur mið af þeim ráðleggingum sem gefnar eru frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), rannsóknarsetrum í Skandinavíu og víðar.

Hluti þeirra ritrýndu rannsókna og annars efnis sem betri vinnutími í vaktavinnu byggir á má sjá hér.“

Til baka