Fréttir

Námskeið fyrir stjórnendur – Kostnaðarmatslíkan

17 jan. 2021

Kostnaðarmatslíkan er viðbót við mönnunarlíkanið Gullinbrú sem búið hefur verið til og á að auðvelda stjórnendum við innleiðingu á betri vinnutíma í vaktavinnu.

Markmið með kostnaðarmatslíkaninu er að sýna áhrif forsendna mönnunar eftir umbótasamtal og betri vinnutíma á launakostnað.

Gullinbrú í heild sinni verður nýtt til að meta hvort mönnunarforsendur teljist standast á vinnustað vegna kerfisbreytingarinnar sem tekur gildi þann 1. maí næstkomandi.

Fjármálastjórum er bent sérstaklega á að koma á námskeið á kostnaðarmatslíkanið.  Þeir sem ekki hafa sótt námskeið á mönnunarlíkan þurfa að kynna sér Gullinbrú vel áður en námskeið á kostnaðarmatslíkanið er sótt.  Allar nánari upplýsingar um Gullinbrú er að finna hér.

 

Námskeiðið er ein klukkustund að lengd og fer fram á teams.

Skráning námskeiða fer fram á vef Starfsmenntar

Tímasetningar námskeiða eru eftirfarandi:

20. jan kl. 11.15

21. jan kl. 11

21. jan kl. 15

22. jan kl. 13

25. jan kl. 11

25. jan kl. 13

26. jan kl. 11

Til baka