Fréttir

Stjórn LL lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu löggæslu á Íslandi

31 maí. 2021

Stjórn Landssambands Lögreglumanna lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem lögreglan stendur frammi fyrir. Alltof fáir lögreglumenn eru við störf og hlutfall lærðra lögreglumanna er hættulega lágt. Ljóst er að eftir að stytting vinnuvikunnar tók gildi þann 1.maí síðastliðinn hefur staða löggæslu á Íslandi versnað til muna.

Þrátt fyrir loforð og samninga um annað hafa lögregluembætti landsins ekki fengið fjármagn frá ríkisvaldinu til að ráða viðbótarmannskap. Það hefur í för með sér að færri lögreglumenn eru á vakt hverju sinni. Þetta ástand dregur verulega úr öryggi lögreglumanna og almennings.

Þegar samið var um styttri vinnuviku fyrir vaktavinnufólk hlýtur ríkisvaldinu að hafa verið ljóst að ráða þyrfti fleiri lögreglumenn til starfa og setja aukið fé í menntun lögreglumanna.

Lögreglumenn krefjast þess að ráðamenn standi við gerða samninga og veiti það fjármagn sem þarf til þess að manna lögregluna með viðunandi hætti.

Til baka