Fréttir

Fangelsi breytt í aðstöðu fyrir lögreglu

4 feb. 2022

Framkvæmdir standa nú yfir vegna breytinga á húsnæði sem Fangelsið á Akureyri hafði áður til umráða. Embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra fær húsnæðið undir sína starfsemi að þeim loknum, en fangelsið var rekið í sama húsnæði og lögreglan, við Þórunnarstræti 138. Þetta kemur fram á vef Vikublaðsins.

Þar segir að kostnaðaráætlun hljóði upp á 118,2 milljónir króna. Lægsta boð hafi hljóðað upp á 148,9 milljónir. Verklok eru áætluð í júní.

„Verkið felst í því að breyta fangelsinu í aðstöðu fyrir almenna deild lögrelgunnar. Um er að ræða niðurrif á því sem fyrir er og að byggja upp á nýjan leik. Þar verða me.a. skrifstofur, búningsklegar, eldhús, matsalur og fundarsalur. Einnig verða gerðir nýir gluggar, útihurð og útitröppur. Húsnæðið er um 600 fermetrar að stærð. Húsnæðið hefur staðið autt frá því fangelsið var lagt niður í september  árið 2020.  Gagngerar endurbætur voru gerðar á húsnæði Fangelsins árið 2008,“ segir í fréttinni.

Til baka