Fréttir

Tilkynning frá kjörstjórn LL 7. janúar 2025

7 jan. 2025

Kjörstjórn Landssambands lögreglumanna (LL) kom saman til fundar mánudaginn 6. janúar 2025 til að undirbúa, fara yfir og fjalla um kjörskrá vegna kosningar um nýjan kjarasamning Landssambands lögreglumanna og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. íslenska ríkisins sem undirritaður var 19. desember 2024. Einnig til að vinna undirbúning og annast framkvæmd atkvæðagreiðslu um samninginn og ákveða fyrirkomulag hennar. Um kjörstjórn gilda ákvæði 26. greinar laga LL. Upplýsingar liggja fyrir um að samningurinn hafi verið kynntur félagsmönnum af hálfu LL 6. janúar og að tvær aðrar kynningar fari fram þriðjudaginn 7. janúar. Þá hefur kjarasamningurinn þegar verið birtur á læstu félagssvæði LL-félaga á vefnum www.logreglumenn.is, þar sem LL-félagar munu einnig geta nálgast kynningarefni og samninginn.

Með hliðsjón af 3. grein laga LL hefur kjörstjórn nú í samræmi við 26. grein laga LL staðfest kjörskrá sem gerð er eftir félagatali LL. Þá hefur kjörstjórn einnig ákveðið að rafræn kosning um kjarasamniginn fari fram frá og með fimmtudeginum 9. janúar 2025 kl.14:00 og að kosning standi til mánudagsins 13. janúar 2025 kl. 14:00. Fyrirkomulag atkvæðagreiðslu er með þeim hætti að þeir lögreglumenn sem eru félagar í LL og kosningarétt hafa samkvæmt kjörskrá skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á mínar síður á vef LL logreglumenn.is. og greiða þar atkvæði um samninginn.

Kjörstjórn vekur athygli á því að erindi vegna kosningar, vegna kjörskrár, framkvæmdar kosningar og annarra atriða er kosninguna varðar er unnt að senda á formann kjörstjórnar, Magnús Jónasson, á póstnetfangið magnus.jonasson@lrh.is.

 

Kjörstjórn Landssambands lögreglumanna  

 Reykjavík 7. janúar 2025, 

Magnús Jónasson (sign)

Guðrún Rósa Ísberg (sign)

Kjartan Páll Sæmundsson (sign)

Til baka