Fréttir

Nokkrir félagar í LL sæmdir heiðursmerki félagsins á 1. maí

2 maí. 2025

Í gær fimmtudaginn 1. maí á baráttudegi verkalýðsins sæmdi formaður Landssambands lögreglumanna, Fjölnir Sæmundsson, nokkra lögreglumenn heiðursmerki félagsins, fyrir störf að félagsmálum lögreglumanna, samkvæmt tillögum orðunefndar.

Veiting heiðursmerkjanna fór fram að lokinni lögreglumessu sem haldin var í Kirkju Óháða safnaðarins og var í umsjá lögreglukórsins.

Við athöfnina í gær tók Vilhjálmur K. Stefánsson við silfurmerki félagsins og þau Agnes Ósk Marzellíusardóttir, Arna Óskarsdóttir, Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, Ásdís Haraldsdóttir, Hrafn Grétarsson, Magnús Kristinsson og Jóhann Björn Skúlason tóku við bronsmerki.

Til baka