Fréttir

Næstu fundir í stjórnum og nefndum LL

18 ágú. 2025

Nú þegar ágústmánuður er rúmlega hálfnaður er rétt að geta um næstu fundi í nokkrum stjórnum, sjóðstjórnum og nefndum félagsins.
Fundur stjórnar STALL starfsmenntunarsjóðs er fyrirhugaður mánudaginn 8. september og þar næst 13. október. Stjórn fræðslu- og starfsþróunarsjóðs fundar næst mánudaginn 1. september en næsti fundur þar á eftir er fyrirhugaður í desember. Dagsetning næsta fundar stjórnar styrktar- og sjúkrasjóðs liggur ekki fyrir en stjórnin mun þó funda næst í septembermánuði. Þá er næsti fundur í málskostnaðarnefnd LL fyrirhugaður 1. september n.k.
Framkvæmdastjórn félagsins átti fund föstudaginn 15. ágúst og næsti fundur í stjórn LL er fyrirhugaður um eða upp úr mánaðarmótum.

Til baka