European LGBT Police Association
29 ágú. 2025
Á vettvangi EuroCop sem eru evrópsk samtök lögreglumanna sem LL er hluti af var á ráðstefnu fyrir skemmstu kynnt starfsemi samtaka sem heita European LGBT Police Association. Þetta eru samtök hinsegin lögreglumanna í Evrópu. Aðild að þessum samtökum eiga bæði ýmis landssamtök lögreglumanna og einstaklingar frá löndum þar sem landssamtök eru ekki meðlimir.
Markmið samtakanna er bæði að styðja hinsegin lögreglumenn í starfi sem og að auðvelda hinsegin samfélaginu að tilkynna glæpi gegn sér. Samtökin standa fyrir námskeiðum og fræðslu auk þess sem þau halda ráðstefnur reglulega þar sem þau þróa starfsemi sína og deila reynslu frá ólíkum löndum. Undanfarið hafa samtökin verði að einbeita sér að réttindum trans lögreglumanna og að gera þeim vinnuumhverfið jafn öruggt og fyrir aðra lögreglumenn.
Má geta þess að fram til ársins 2016 hétu samtökin Gay Police Association. Gefa samtökin sig í dag út fyrir að fyrir að vera vettvangur fyrir lesbíur, homma, tvíkynhneigða og trans. Samtökin halda úti heimasíðu European LGBT Police Association (EGPA) þar sem hægt er að kynna sér starfið betur og komast í samband við þau. Hvetja má lögreglumenn til að kynna sér starfsemi samtakanna og þá fræðslu sem þau bjóða upp á.
Ef einhverjir hinsegin lögreglumenn hafa áhuga á að kynna sér samtökin enn betur, tengjast þeim og/eða hafa áhuga á að sækja fund hjá samtökunum geta hlutaðeigandi haft samband við skrifstofu LL sem getur þá komið á tengslum við samtökin. Þess má svo einnig geta að landssambönd lögreglumanna í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi eru meðlimir í EGPA.