Fréttir

Um orlofshús LL og aðra orlofskosti

29 ágú. 2025

Athygli LL-félaga er vakin á því að unnt er að kaupa orlofskosti á orlofsvef félagsins, m.a. ferðaávísanir á gistingu, gjafabréf Icelandair o.fl. Innskráning er með rafrænum skilríkjum en á orlofsvef er einnig hægt að kanna með framboð orlofshúsa, skoða myndir af húsunum, bóka og greiða fyrir. Júlí- og ágústmánuðir voru mjög þétt bókaðir en laust er í orlofshúsum í september og október að einhverju marki. Tímabilið frá og með nóvember tilheyrir svo vetrartíma og verður opnað fyrir bókanir þar næstkomandi mánudag 1. september.

Afar mikilvægt er að brýna fyrir LL-félögum að ganga vel um orlofshúsin og skilja við þau þrifnum að dvöl lokinni. Tilraunaverkefni um hunda í orlofshúsum á Geysi, Flúðum og á Akureyri hefur heilt yfir gengið vel en þó hafa komið upp örfá tilfelli þar sem ekki hefur verið skilið nægjanlega vel við, ekki þrifið nægjanlega innandyra og ekki hirt upp eftir hund með ásættanlegum hætti í nærumhverfi. Í langflestum tilvikum hefur þetta þó verið í góðu lagi. Orlofsnefnd LL hefur ekki tekið ákvörðun um að breyta fyrirkomulaginu en rétt er að hvetja hundaeigendur til að hafa þessi mál í lagi svo ekki þurfi að banna dvöl hunda.

Þá er það alltaf góð regla að skilja við orlofshús eins og maður myndi sjálfur vilja koma að því. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum sem eru í húsunum sjálfum og vera ekki að eiga við eða fikta með m.a. stýringar á heitum pottum, sjónvarpstengingar o.fl., því næsti gestur í húsið gæti lent í vandræðum ef búið er að eiga við stillingar/tengingar. Starfsfólk á skrifstofu LL og meðlimir í orlofsnefnd hafa ekki tök á að fara í húsin til viðhalds og eftirlits nema í örfá skipti yfir árið og ekki er starfandi umsjónarmaður á orlofssvæðum nema í Munaðarnesi og á Eiðum. Því er það samvinnuverkefni allra að gera vel í þessum efnum. Alltaf skal þrífa að dvöl lokinni en heimilt er að hengja tuskur og slíkan búnað sem notaðar var við þrif og svo þvegið í þvottavél, á snúru við það að húsið er yfirgefið.  Þetta eru orlofshús allra lögreglumanna og metnaðarmál að vel sé um gengið. Ábendingar um tæki, efni og annað sem LL-félagi telur upp á vanta í orlofshús eru alltaf vel þegnar og má senda skrifstofu LL með tölvupósti.

Til baka