Fréttir

Páskar 2026 – Umsóknir um dvöl í orlofshúsum LL

10 feb. 2026

Opnað verður á umsóknir vegna páskaúthlutunar í orlofshús félagsins núna á morgun, þ.e. næst komandi miðvikudag 11. febrúar klukkan 09. Verður opið fyrir páskaumsóknir í tvær vikur og úthlutun tilkynnt LL-félögum að þeim tíma liðnum. Sótt er um á mínum síðum á orlofsvef félagsins og innskráning er með rafrænum skilríkjum.

Opnun á umsóknir vegna sumarúthlutunar verður auglýst nánar síðar en stefnt er að því að opna fyrir bókanir á sumartímabili seinni hluta marsmánaðar.

Þá munu lífeyrisþegar njóta forgangs í orlofshús í byrjun sumars líkt og verið hefur undanfarin ár og hefur verið miðað við miðjan og seinni hluta maímánaðar og fram í byrjun júní. Verður þetta tilkynnt lífeyrisþegum og auglýst nánar síðar.

Til baka