Ákærðir á ný fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
25 feb. 2026
Héraðssaksóknari hefur í annað sinn gefið út ákæru á hendur þremur karlmönnum sem eru grunaðir um að hafa kveikt í bíl í ágúst 2023. Bíllinn var í eigu lögreglukonu sem grunaði strax að íkveikjan tengdist störfum hennar. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Áður hafði verið gefin út ákæra vegna sama brots en henni var vísað frá dómi. Dómari taldi að héraðssaksóknara hefði skort vald til að ákæra mennina fyrir eignaspjöll þar sem slíkt félli undir verkahring lögreglustjóra. Eina leiðin til að héraðssaksóknari gæti ákært fyrir slíkt brot væri með leyfi ríkissaksóknara en þess hafði ekki verið aflað. Í kjölfarið var málinu vísað frá dómi og ríkissjóði gert að greiða rúmar ellefu milljónir króna í sakarkostnað vegna málsvarnarlauna verjenda mannanna þriggja.
Tveir ákærðu eru búsettir hér á landi en einn í Svíþjóð. Samkvæmt ákæru átti einn þeirra að fá 100 þúsund krónur fyrir íkveikjuna. Rannsókn málsins beindist lengst af að broti gegn valdstjórninni þar sem kveikt var í bíl lögreglukonu auk meintra eignaspjalla. Að lokum var þó aðeins ákært fyrir eignaspjöll.
Nú hefur héraðssaksóknari ákært mennina á ný, að þessu sinni fyrir stórfelld eignaspjöll. Með ákærunni fylgir einkaréttarkrafa frá Verði tryggingum upp á tæpar 2,8 milljónir króna og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krefst hálfrar milljónar króna frá þeim.
Mennirnir neituðu sök við fyrri réttarhöld.