Fréttir

FÍR slitið

25 feb. 2026

Hinn 30. janúar sl. barst LL tilkynning um að daginn áður eða 29. janúar hefði farið fram slitafundur Félags íslenskra rannsóknarlögreglumanna og lauk þar með fjörutíu ára sögu félagsins. Má segja að tímarnir hafi tekið breytingum og áður fyrr hafi námsstefnur FÍR verið vettvangur til að kynna m.a. það sem efst var á baugi í rannsóknaraðferðum hjá lögreglu en með auknu námsframboði og breytingum á fyrirkomulagi náms lögreglumanna, samfélagsþróun o.fl. hafi margt breyst.

Skrifstofa LL hefur verið fráfarandi forystu FÍR innan handar með lokaaðgerðir í tengslum við slit félagsins.

Til baka