Fréttir

Ályktun stjórnar Landssambands lögreglumanna um húsnæðis- og aðstöðumál lögreglu á Ísafirði

19 mar. 2026

Stjórn Landssambands lögreglumanna harmar þá alvarlegu stöðu sem uppi hefur verið um langt skeið í húsnæðis- og aðstöðumálum lögreglunnar á Vestfjörðum í starfsaðstöðu lögreglumanna á Ísafirði og krefst tafarlausra úrbóta.

Húsnæðis- og aðstöðumál lögreglumanna á Ísafirði hafa verið í algerum ólestri mörg undanfarin ár og þrátt fyrir ítrekuð afskipti, úttektir og skýrslur Vinnueftirlitsins og stanslausar ábendingar embættisins og starfsmanna þess um meðal annars rakaskemmdir og myglu, ófullnægjandi loftræstingu í vinnurýmum og ótengt loftræstikerfi, ófullnægjandi lýsingu, vatnsleka í veggjum, að hita- og rakastig á vinnustöðvum sé í ólagi, algerlega óboðlega búnings- og salernisaðstöðu lögreglumanna, aftengt brunavarnakerfi, skort á öryggisstýringum o.fl. hafa fullnægjandi úrbætur ekki átt sér stað. Að mati Landssambands lögreglumanna er fullljóst að nauðsynlegu og eðlilegu viðhaldi hefur ekki verið sinnt um langt árabil og hefur þetta slæm áhrif á starfandi lögreglumenn á svæðinu sem hafa lengi kvartað yfir loftgæðum, lýsingu, raka, ófullnægjandi starfsaðstöðu o.fl. Ástand þessara mála hefur haft slæm áhrif á heilsu þeirra og heilbrigði í sumum tilvikum. Vinnueftirlitið hefur ítrekað beint fyrirmælum um að ráðast skuli í úrbætur og þar á meðal um að tryggja skuli að raki í byggingarefnum eða afleiðingar hans rýri ekki eðlileg heilbrigðis- og hollustuskilyrði innandyra og valdi starfsfólki tjóni.

Stjórn Landssambands lögreglumanna harmar sinnuleysi yfirvalda í nauðsynlegum úrbótum í húsnæðis- og aðstöðumálum lögreglustöðvar á Ísafirði og krefst tafalausra aðgerða þeirra sem fara með fasteignamál ríkisins að þessu leyti. Ljóst er að í algert óefni er komið og aðgerðir til úrbóta þola enga bið. Verði ekki brugðist við með skýrum og ótvíræðum hætti á næstu vikum og mánuðum verði starfsaðstöðu lögreglu á Ísafirði lokað á grundvelli laga sem gilda á sviði vinnuverndar, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og um húsnæði vinnustaða. Núverandi aðbúnaður og starfsaðstaða lögreglumanna á Ísafirði er með öllu óboðlegt ástand og gerir erfitt um vik með störf.

Landssamband lögreglumanna

Reykjavík 19. mars 2026

Til baka