Fréttir

Sumarúthlutun 2026

19 mar. 2026

Sumarúthlutun orlofshúsa er á næsta leiti.

Vikuna 20. – 27. mars verður opnað fyrir bókanir þeirra félagsmanna sem hafa hafa 150 punkta eða fleiri.

Vikuna 28. mars – 7. apríl verður opnað fyrir bókanir þeirra sem hafa á bilinu 100 til 149 punkta.

Eftir það verður opnað fyrir alla nema lífeyrisþega.

Félagsmenn geta valið sér tíma og stað eftir eigin óskum. Ekki er þörf á að bóka heila viku né að hefja dvölina á föstudegi. Lágmarksdvöl eru tvær nætur.

Hver félagi getur aðeins bókað eina dvöl yfir sumartímann. Reglan fyrstur kemur fyrstur fær gildir.

Við bókun dragast fimm punktar frá punktastöðu félagsmanns fyrir hvern dag sem bókað er.

Ganga þarf frá greiðslu við bókun.

Til baka