Vanhugsuð áform um afnám áminningarskyldu
24 mar. 2026
Landssamband lögreglumanna leggst alfarið gegn áformum stjórnvalda um afnám áminningarskyldu gagnvart opinberum starfsmönnum, þ. á m. lögreglumönnum. Áformin eru vanhugsuð og sett fram án alls samráðs og samtals við félagið. Eldri umsögn LL má sjá hér.
Í myndskeiðinu sem hér fylgir er viðtal við Guðmund Fylkisson aðalvarðstjóra þar sem hann ræðir m.a. starf sitt, starfsumhverfi o.fl. Guðmundur, sem víða hlaut nafnbótina maður ársins 2025, er mjög reynslumikill lögreglumaður, hefur einnig starfað lengi að ýmsum félagsmálum og þurft að takast á við mörg gríðarlega krefjandi verkefni á löngum starfsferli. Hann hefur auk þess mikla reynslu af störfum í þágu Landssambands lögreglumanna og var m.a. um tíma í stjórn félagsins og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið.
Lögreglumenn eru framlínustétt og vinna mjög krefjandi störf í þágu samfélagsins alls. Áminningarskyldan felur í sér mjög mikilvægan varnarskjöld opinberra starfsmanna sem vinna krefjandi störf, m.a. lögreglumanna, fangavarða, starfsfólks í velferðarþjónustu, kennara, heilbrigðisstarfsfólks o.fl. Að ætla að afnema áminningarskyldu gagnvart lögreglumönnum gerir störf þeirra og starfsumhverfi miklu erfiðara. Um yrði að ræða gríðarlega réttindaskerðingu sem væri algerlega án fordæma og mikla afturför sem hefði í för með sér margvíslegar og alvarlegar afleiðingar.