Lögreglumessa 1. maí
29 apr. 2026
Föstudaginn 1. maí næst komandi fer fram árleg lögreglumessa. Að þessu sinni verður hún í Fella- og Hólakirkju en viðburðurinn er líkt og fyrri ár í umsjá lögreglukórsins.
Messan hefst klukkan 11 árdegis og mun lögreglukórinn syngja undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Prestur er séra Pétur Ragnhildarson.
Að athöfn lokinni verða léttar veitingar á boðstólnum.
