Guðlaug skrifstofustjóri lætur af störfum
29 apr. 2026
Guðlaug Hreinsdóttir skrifstofustjóri sem starfað hefur hjá Landssambandi lögreglumanna (LL) í næstum því sextán ár lætur af störfum hjá félaginu núna um komandi mánaðarmót. Félagar í Landssambandi lögreglumanna þekkja Gullu vel enda hefur hún staðið í stafni félagsins um langt árabil og þjónustað þá vel í gegnum árin. Hóf hún reyndar störf í BSRB-húsinu á árinu 2000, þá hjá SFR stéttarfélagi í almannaþjónustu, en færði sig svo yfir til LL á árinu 2010.
Við þessi tímamót þakkar Landssamband lögreglumanna Guðlaugu fyrir vel unnin störf í þágu félags- og hagsmunamála lögreglumanna og óskar henni velfarnaðar.