Fundir halda áfram í dag (mánudaginn 27. júní), þar sem frá var horfið s.l. föstudag (24. júní), í húsnæði Ríkissáttasemjara að Borgartúni 21, í kjaradeilu LL við ríkisvaldið.

 

 

Lítið miðaði í samkomulagsátt á þeim fundum sem haldnir voru í liðinni viku.  Enn liggur ekkert annað á borðinu, af hálfu ríkisvaldsins, en samið hefur verið um á hinum almenna vinnumarkaði og í þeim samningum sem þegar hafa verið gerðir við ýmis stéttarfélög opinberra starfsmanna.  Innihald þeirra samninga má m.a. lesa á heimasíðu SFR hér (kjarasamningur SFR við ríkisvaldið).

 

Frekari fréttir af gangi viðræðnanna verða birtar hér á lokaða svæðinu um leið og færi gefst.