Eins og fram kom í frétt hér í gær, héldu fundir áfram í dag (föstudaginn 24. júní) í kjaradeilu LL við ríkisvaldið í húsnæði Ríkissáttasemjara að Borgartúni 21 í Reykjavík.
Staða viðræðnanna hefur ekkert breyst frá því sem greint var frá í gær en ýmis tilboð gengu þó á milli samningsaðila í dag, líkt og í gær, en lítið þokar í átt að samkomulagsátt.
Það bætir ekki úr skák að staðan á vinnumarkaði, í heild sinni, virðist nú vera orðin sú að þær launabætur sem samið var um, á milli ASÍ og SA á vormánuðum, sem hafa verið forskrift samninga á hinum opinbera markaði einnig, eru nú horfnar eða u.þ.b. að hverfa vegna aukinnar verðbólgu í kjölfar ýmissa verðhækkana. Vafalítið er, m.v. fréttir fjölmiðla undanfarna daga, að fleiri verðhækkanir eru væntanlegar á næstu vikum og mánuðum.
Ýmis önnur stéttarfélög, auk LL, hafa setið að fundum í dag og lítið eða ekkert þokast í samkomulagsátt í þeim viðræðum líkt og hjá LL enda ríkisvaldið einart í þeirri afstöðu sinni að bjóða ekkert umfram það sem samið var um á hinum almenna vinnumarkaði í vor.
Næsti fundur í kjaradeilunni hefur verið boðaður n.k. mánudag (27. júní) kl. 10:00.