Óformlegar þreyfingar hafa átt sér stað á milli ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka opinberra starfsmanna (BSRB, BHM og KÍ sem dæmi) um skipulag kjaraviðræðnanna í samræmi við yfirlýsingar sömu aðila um bætt vinnubrögð við gerð kjarasamninga í framhaldi af útkomu skýrslu um kjarasamninga og vinnumarkað á Norðurlöndum, sem gefin var út í maí 2013.
Settur hefur verið á fót vinnuhópur samningsaðila sem ætlað er það hlutverk að fara yfir og skilgreina ýmsa þætti er varða vinnufyrirkomulag vaktavinnufólks. Þá er enn í gangi vinna er lýtur að því að reyna að leita lausna að samræmdu lífeyriskerfi allra landsmanna en engar breytingar hafa orðið eða eru fyrirsjáanlegar í þeim efnum á næstunni. Vinna þessi miðar að því að hinn almenni vinnumarkaður auki framlög sín til lífeyrissjóðakerfisins en til þess að hægt yrði að ná lendingu í þeim efnum þarf jafnframt að tryggja það að launakjör á hinum opinbera markaði séu sambærileg og jöfn við það sem gerist á hinum almenna vinnumarkaði. Ljóst er, á þessari stundu, að til að hægt yrði að ná lendingu í þessum efnum þyrfti ríkisvaldið að stórhækka laun opinberra starfsmanna með tilheyrandi aukakostnaði fyrir ríkissjóð. Ýmis önnur ljón eru í veginum fyrir því að þessari vinnu verði hægt að ljúka á næstu mánuðum eða misserum.
BSRB fer sem fyrr með forræði er kemur að samningum um styttingu vinnuvikunnar enda er hér um að ræða málefni er snertir allan hinn opinbera vinnumarkað. LL hefur hinsvegar beina aðkomu að þeim viðræðum þar sem formaður LL situr bæði í stjórn og framkvæmdastjórn BSRB.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er allt útlit fyrir all harðar kjarasamningsviðræður í vetur og fá teikn á lofti – í ljósi launahækkana ýmissa hópa, t.d. stjórnenda bæði í almennum og opinberum rekstri, umfram það sem almennt var samið um á launamarkaði við gerð síðasta framlengingarsamkomulags kjarasamninga. Þá má einnig, í sama ljósi, leiða að því líkum að frekar verði um enn eitt framleningarsamkomulag gildandi kjarasamninga að ræða frekar en eiginlegan kjarasamning en rétt er hér að halda því til haga að síðast gerði LL kjarasamning við ríkisvaldið árið 2005. Sá samningur rann út í október 2008 (í miðju bankahruni) og hefur sá samningur verið framlengdur nokkrum sinnum frá þeim tíma ýmist með samþykktu framleningarsamkomulagi (í allsherjaratkvæðagreiðslu félagsmanna) eða með úrskurði gerðardóms.