Fræðslu- og starfsþróunarsjóður lögreglumanna starfar með því skipulagi og markmiði sem nánar er kveðið á um í kjarasamningi milli fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs annars vegar og Landssambands lögreglumanna hins vegar. Vinnuveitandi greiðir sérstakt gjald í sjóðinn sem nemur 0,4% af heildarlaunum félaga í LL. Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um sjóðinn.
Hlutverk sjóðsins og meginmarkmið hans er að styðja við sí- og endurmenntun lögreglumanna með því að veita styrki til lögregluembætta vegna lögreglumanna á landsbyggðinni sem stunda framhaldsnám hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar eða sækja fræðslu- og þjálfunarnámskeið að beiðni lögreglustjóra og þurfa að búa fjarri heimilum sínum.
Umsóknir embætta ásamt gögnum skal senda rafrænt til Landssambands lögreglumanna á netfangið starfsthrounarsjodur@logreglumenn.is eða ll@logreglumenn.is. Sendi embætti nokkrar umsóknir eða margar skal sérstakt yfirlit yfir allar umsóknir fylgja. Skrifstofa LL annast umsýslu með starfsemi sjóðsins, þ. á m. leiðbeiningar, utanumhald umsókna og útgreiðslu styrkja.
Stjórn sjóðsins skipa:
Ragnar Svanur Þórðarson, fulltrúi LL
Kári Erlingsson, fulltrúi LL og formaður stjórnar sjóðsins
Páley Borgþórsdóttir, fulltrúi Lögreglustjórafélagsins
Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, fulltrúi dómsmálaráðuneytisins
Stjórn sjóðsins fundar að jafnaði þrisvar sinnum á ári, um vor, haust og vetur. Miðað er við að fastir fundir séu í apríl, september og desember. Aðrir fundir eru haldnir eftir atvikum.
Varamenn LL í stjórn eru:
Skúli Berg
Guðmundur Fylkisson
Reglur sjóðsins (tóku gildi 22. des. 2022)
Athugið að þann 15. júlí 2018 tóku gildi ný lög um persónuvernd á Íslandi. Ekki verður hér eftir tekið við umsóknum um styrki í sjóði án formlega útfyllts eyðublaðs vegna styrkbeiðnarinnar. Nánari upplýsingar um persónuverndarlögin er að finna á vef Persónuverndar.