Danmörk: Vinnan of alltumlykjandi í frítíma

Í Danmörku er nýleg og áhugaverð umfjöllun í Dansk Politi um lélegt sálrænt vinnuumhverfi lögreglumanna þar í landi og aukningu á veikindum lögreglumanna í tengslum við andlegt álag og slík veikindi. Fram kemur í nýlegri rannsókn danska ríkislögreglustjórans að 7,1 % svarandi lögreglumanna í rannsókninni sögðust hafa tilkynnt um veikindi á liðnum tveimur árum af þessum sökum. Þá svöruðu 23% lögreglumanna því til að hafa orðið fyrir áreitni á vinnutíma. Þar af sögðust 17,8% ekki hafa fengið viðeigandi hjálp eða meðferð við slíkri áreitni. Kemur einnig fram í rannsókninni að heil 41% lögreglumanna eigi erfitt með að losa sig andlega frá vinnu og vinnuumhverfi. Vinnan sé þannig sálrænt séð í of ríkum mæli alltumlykjandi í frítíma. Er vísað til þess að seinna á þessu ári (september 2026) muni Norðurlöndin eiga með sér ráðstefnu um ofbeldi, hótanir og áreitni í garð lögreglumanna þar sem þessi mál verða í brennidepli. Segir áfram í umfjöllun blaðsins að mikilvægt sé að lögreglumenn tilkynni um háttsemi af þessum toga en með því er bæði unnt að veita aðstoð til viðkomandi lögreglumanns en að sama skapi sé einnig hægt að greina með nákvæmari hætti við hvaða aðstæður lögreglumenn verða mest fyrir slíkri háttsemi.

Þá fjallar Dansk Politi einnig um bótamál lögreglumanna og greinir frá því að árið 2025 hafi 57 bótamálum verið lokið þar sem samanlögð bótafjárhæð nemur um 114 milljónum danskra króna (um 2,2 milljörðum íslenskra króna). Árið 2024 voru bæturnar aftur á móti alls 140 milljónir og málin alls 65 talsins. Árið 2023 var 33 bótamálum lokið og 75 milljónir greiddar í bætur. Fram kemur einnig í umfjöllun blaðsins að bótamál lögreglumanna í Danmörku taki oftast nokkur ár að leiða endanlega til lykta. Í samtali við Heino Kegel formann danska sambandsins kemur fram að honum þyki þetta gríðarlega há fjárhæð en að sama skapi sé mikilvægt að þegar vinnuslys lögreglumanna eigi sér stað standi landssambandið þétt með sínum félagsmönnum að þessu leyti og að þeir fái réttmætar bætur. Meðaltalsgreiðsla fébóta í hverju máli er samkvæmt þessu öllu um tvær milljónir danskra króna. Langstærstur hluti heildarfjárhæðarinnar, eða sem nemur 96 milljónum, rennur til bótagreiðslna vegna taps lögreglumanna á starfsgetu. Í því felst nánar tiltekið að lögreglumaðurinn getur ekki lengur starfað með sama hætti og áður vegna annaðhvort líkamstjóns eða sálrænna áfalla. Bendir danski formaðurinn á að mikil vinna sé lögð í að reyna að fyrirbyggja áföll og lágmarka áhættu að þessu leyti á vinnuslysum lögreglumanna. Úrræði séu til staðar við að veita aðstoð og að þessi verkefni séu í forgangi hjá landssambandinu.

Noregur: Þorði ekki að kyssa börnin sín eftir að hafa meðhöndlað mann með lifrarbólgu

Í nýlegri júníútgáfu Politiforum í Noregi er rætt við lögreglumann úr suðvesturumdæmi sem tók fjögur ár að fá greiddar bætur vegna máls en viðkomandi varð fyrir því við afskipti af hótelgesti í nóvember á árinu 2021 að fá hráka í andlit. Hótelgestur hafði haldið vöku fyrir öðrum gestum umrædda nótt og haft í frammi háreysti. Þegar lögregla mætti á staðinn hrækti viðkomandi á lögreglumanninn þannig að hrákinn lenti við munnsvæði og einnig yfir nef. Við afskipti og handtöku greindi hótelgesturinn ítrekað frá því að hann væri smitaður af lifrarbólgu C.

Í samtali við lögreglumanninn kemur fram að í reynd sé smithætta fremur lítil en engu síður hafi mánuðirnir sem á eftir fylgdu verið honum þungbærir þar sem viðkomandi á ung börn og hafi hann ekki þorað að kyssa börnin sín góða nótt í marga mánuði. Hafi hann notast við sérstök áhöld við að reiða fram mat fyrir þau o.fl. slík óþægindi fylgi svona, sem fólk er kannski ekki almennt að velta mikið fyrir sér. Dæmt var í málinu í febrúar 2023 þar sem lögreglumanninum voru dæmdar 20.000 NOK bætur vegna hrákans en viðkomandi gerandi var einnig sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og önnur brot. Byggði dómurinn m.a. á því að slíkur hráki í andlit lögreglumannsins falli undir það að vera gróft ofbeldi. Hafi háttsemin valdið lögreglumanninum áþján og óvissu um langan tíma varðandi mögulegt smit af lifrarbólgu C. Hefði þetta haft í för með sér miklar takmarkanir fyrir hann og fjölskyldu hans.

Segja má að vandræði lögreglumannsins hafi aftur á móti fyrst byrjað eftir dómsuppkvaðninguna, við að fá bæturnar innheimtar, en það tókst loksins núna nýverið eftir nokkurra ára baráttu. Í ferlinu hafði sú stofnun í Noregi sem annast bótameðferð og uppgjör hafnað greiðslu á þeim grunni meðal annars að opinberir starfsmenn yrðu að umbera meira álag í starfi en aðrir. Þeirri niðurstöðu hafði lögreglumaðurinn andmælt kröfulega og fór svo að lokum að Statens Sivilrettsforvaltning hratt niðurstöðu undirstofnunarinnar og fengust bæturnar því að lokum greiddar.

Þá berast fréttir af vinnu við fyrirhugaðar breytingar á lögreglunáminu í Noregi að því er varðar annars árs nema. Áfram verður miðað við 60 námseiningar en aukin áhersla verður lögð á starfsnám áður en lögreglunemarnir fara út til starfa í umdæmunum. Mun þetta á móti geta haft í för með sér að almenna námið á öðru námsári verði stytt úr 40 vikum niður í 30 þar sem aukið verður umtalsvert á verklega hlutann á móti. Þörfin og rökstuðningurinn fyrir þessum breytingum felast m.a. í því að samfélagsþróunin kalli á aukna verklega þjálfun, vopnaþjálfun o.fl. Samfélagsbreytingar hafi verið hraðar og fleiri alvarleg og flókin verkefni. Þá hafi stórþingið einnig samþykkt að norska lögreglan sé almennt vopnuð. Öll þessi þróun feli í sér grundvallarbreytingar hjá norsku lögreglunni og setji einnig nýjar kröfur í lögreglunáminu.

Svíþjóð: Launakjörin hafa batnað

Sænska Aftonbladet skrifaði nýlega um kjaramál lögreglumanna þar í landi þar sem greint er frá því að lögreglumenn séu meðal sigurvegara þegar litið er til launaþróunar þar í landi undanfarin misseri. Má færa rök fyrir því að þetta sé m.a. afrakstur langtímavinnu hjá sænska sambandinu og að öll sú vinna hafi skilað árangri. Fram kemur í blaðinu að á undanförnum áratug hafi meðallaun lögreglumanna hækkað verulega og meðal annars haft eftir viðmælanda blaðsins, sem er 33 ára lögreglukona, að nú geti lögreglumaður þrátt fyrir gríðarlega krefjandi og stundum hættulegt starfsumhverfi átt þokkalegt líf með ágætum lífskjörum. Ljóst er af umfjöllun blaðsins að ágætur árangur hefur náðst að þessu leyti í Svíþjóð og fram undan eru áframhaldandi verkefni í kjarabaráttu lögreglumanna þar í landi.