Stjórn STALL fundaði í dag en fyrir fundinn höfðu borist 38 umsóknir. Tvær umsóknir voru settar á bið þar sem vntaði gögn og tveimur umsóknum var hafnað þar sem umsækjendur höfðu ekki náð styrkhæfni. Umsóknir voru vegna framhalds og háskólanáms, starfsréttinda, náms erlendis, lífsleikni, aukinna ökuréttinda og ferðakostnaðar innanlands. Stjórn STALL er komin í sumarfrí og verður næsti fundur 14. september. Starfsmenn LL afgreiða umsóknir vegna framhalds og háskólanáms yfir sumartímann í umboði stjornar STALL. Gleðilegt sumar.