Engar fregnir er að hafa af skipun gerðardóms í kjaradeilu LL við ríkisvaldið en LL gekk frá tilnefningu síns fulltrúa og varamanns mánudaginn 4. júlí s.l.  Aðalmaður er Snorri Magnússon, formaður LL og varamaður, Frímann Birgir Baldursson, ritari LL.

 

 

Aðrir fulltrúar í gerðardómnum, eru skv. fylgiskjalinu um dóminn (sjá bls. 44 í kjarasamningi LL), einn fulltrúi samninganefndar ríkisins og einn fulltrúi ríkissáttasemjara, sem jafnframt er formaður dómsins.

 

Gerðardómurinn hefur, skv. áðurnefndu fylgiskjali, þrjátíu (30) daga – frá því að ríkissáttasemjari skipar hann formlega til starfa – til að ganga frá niðurstöðu í málinu, sem er bindandi úrlausn kjaradeilunnar og fer því ekki í formlega kynningu eða atkvæðagreiðslu líkt og almennt gerist með kjarasamninga.  Niðurstaða dómsins verður, að sjálfsögðu, birt hér á lokaða svæðinu um leið og dómurinn hefur gengið frá úrlausn kjaradeilunnar.

 

Fréttir af gangi mála verða fluttar hér, um leið og þær berast.