Á fundi samninganefnda LL og SNR í dag, fimmtudaginn 30. júní, ákvað samninganefnd LL að skjóta kjaradeilunni til úrskurðar gerðardóms í samræmi við 3. gr. fylgiskjals á bls. 44 með núgildandi kjarasamningi LL við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

 

 

Nokkuð vel hefur miðað vinnu við útfærslu textaskjalsins vegna breytinga og framlengingu á kjarasamningi aðila en verr aftur er kom að útfærslu launaliðarins, sem verður rakið hér að neðan.

 

Ástæður þessarar ákvörðunar eru eftirfarandi:

 

  1. Á fundi viðsemjenda sem haldinn var þann 18. október 2010 lagði LL fram bréf þess efnis að gerð yrði úttekt á kjaralegri stöðu lögreglumanna m.v. aðra opinbera starfsmenn sem falla undir lög nr. 94/1986 (sbr. 2. gr. áðurnefnds fylgiskjals.)
  2. Ágreiningur hefur verið á milli samningsaðila um hvaða tímabil skyldi liggja til grundvallar þeirri skoðun á kjaralegri stöðu, sem LL fór fram á að gerð yrði.  LL vildi fara allt aftur til 13. júlí 2001 þ.e. þess dags er fylgiskjalið kom inn í kjarasamninginn þar sem slík úttekt hefur aldrei verið gerð á kjaralegri stöðu lögreglumanna í samræmi við ákvæði þessa fylgiskjals.
  3. SNR féllst ekki á kröfu LL um viðmiðunartímabilið sem tekið yrði til skoðunar og vildi eingöngu skoða tímabilið frá því að gerðardómur úrskurðaði um laun lögreglumanna þann 2. júní 2010.  Það varð því úr að Hagfræðistofnun Háskóla Íslands var, einhliða falið af hálfu SNR, að framkvæma kjaralegu úttektina á forsendum SNR.
  4. Það hefur tekið SNR rúma átta mánuði að ganga frá því að kjaralega úttekin yrði gerð en hún leit loks dagsins ljós þann 20. júní s.l.
  5. LL hefur, margítrekað, bent á þá sérstöðu lögreglumanna að þeir hafi ekki verkfallsrétt, sem reyndar er tilgreint í inngangi fylgiskjalsins, og geti þ.a.l. lítið gert til að knýja á um réttmæt leiðréttingu launa.
  6. Stuttu eftir að gerðardómur felldi dóm sinn í kjaradeilu LL, í júní 2010, féll dómur gerðardóms í kjaradeilu Tollvarðafélags Íslands (TFÍ) við ríkisvaldið en með þeim dómi var m.a. ákveðið að TFÍ tæki upp launatöflu LL sem aftur gerði það að verkum að talsverð hækkun varð á grunnlaunum tollvarða.  Þannig er staðan nú að ófaglærður afleysingamaður í tollgæslu er með kr. 221.702,- í mánaðarlaun á meðan fullmenntaður lögreglumaður frá LSR, sem er að hefja störf í lögreglu er með kr. 211.802,- í mánaðarlaun!!  Ómenntaður afleysingamaður í tollgæslu er þannig með 9.900,- kr. meira í mánaðarlaun en fullmenntaður lögreglumaður!

Augljóst er að sú kjaralega staða, sem lýst er hér að ofan er algerlega óásættanlega.  Engar leiðir hafa verið viðraðar, af hálfu SNR, til að leiðrétta þennan mikla launamun og var því engin önnur leið fær en að skjóta kjaradeilunni til úrskurðar gerðardóms!