Lögreglufélag Vestfjarða hefur fjallað um húsnæðismál lögreglunnar á Vestfjörðum á Ísafirði. Félagsmenn krefjast aðgerða til að tryggja öryggi og heilsu starfsmanna, sem og öryggi þess samfélags sem þeir þjónusta.
Núverandi húsnæði er ekki í samræmi við kröfur um viðunandi vinnuumhverfi eða aðstæður. Í húsnæðinu eru mygla og rakaskemmdir, sem við teljum vera hættulegt starfsfólki og algjörlega óboðlegt í vinnuumhverfi lögreglunnar. Áform um endurbyggingu eru til staðar, en við teljum að kostnaðurinn við endurbyggingu muni að lokum verða meiri en að byggja nýtt húsnæði, auk þess að þarfir lögreglunnar til að sinna starfi sínu verði ekki uppfylltar með þeim breytingum sem ráðgerðar eru. Einnig teljum við vera þörf á stærra húsnæði til þess að mæta þeim þörfum lögreglunnar til framtíðar.
Félagsfundur Lögreglufélags Vestfjarða leggur til að núverandi húsnæði verði af látið og að nýtt húsnæði verði byggt. Við teljum að nauðsynlegar breytingar á núverandi húsnæði séu ekki nægjanlegar til að uppfylla þarfir lögreglunnar til að sinna skyldum sínum. Við hvetjum ráðherra og aðra ráðamenn til að grípa til aðgerða til að tryggja heilbrigt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk lögreglunnar.
Landssamband lögreglumanna sendi ályktun um ástandið um miðjan mars, ekki hefur verið brugðist þeirri ályktun.
Þá er það skoðun félagsmanna að Vinnueftirlit ríkisins hafi ekki staðið við skyldur sínar til að tryggja öryggi starfsmanna. Vísað er í lög um vinnuvernd, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og um húsnæði vinnustaða í þeim efnum.
Lögreglufélag Vestfjarða skorar á ríkið, hlutaðeigandi ráðherra og aðra ábyrgðaraðila að bregðast tafarlaust við þessu ástandi og tryggja að starfsmenn lögreglustjórans á Vestfjörðum á Ísafirði, geti sinnt skyldum sínum og störfum á öruggan og heilbrigðan hátt.
Núverandi aðbúnaður og starfsaðstaða lögreglumanna á Ísafirði er með öllu óboðlegt ástand.
Samþykkt á félagsfundi 18.ágúst 2026
Stjórn Lögreglufélags Vestfjarða