Afgreiðsla styrkja er orðin að fullu rafræn. Sótt er um í gegn um Mínar síður. Einnig er hægt að skila umsóknum um styrki úr sjóðnum rafrænt til skrifstofu LL. Netfangið er ll@logreglumenn.is

Kynnið ykkur vel úthlutunarreglur sjóðsins og tryggið að allar umbeðnar upplýsingar séu réttar. Allar kvittanir þurfa að bera nafn/kennitölu félagsmanns.

Allir styrkir úr Styrktar-og sjúkrasjóði eru skattskyldir, undantekning á því eru styrkir vegna líkamsræktar og dánarbætur. Frekari upplýsingar er hægt að finna á vef Ríkisskattstjóra.

Ef félagsmaður ætlar ekki að fara „rafrænu leiðina“ þá er hérna fyrir neðan umsóknareyðublað, það er óþarft ef sótt er um á „mínum síðum“.

Umsóknareyðublað
Úthlutunarreglur
Vottord_launagreidanda_2009

Allar umsóknir eru afgreiddar vikulega nema um vafaatriði sé að ræða. Eins fara umsóknir um læknis-og lyfjakostnað fyrir fund stjórnar sjóðsins. Fundir stjórnar eru að öllu jöfnu í lok hvers mánaðar eða eftir því hversu mikið liggur fyrir.

Hér má sjá hvernig stjórn styrktarsjóðsins er skipuð.