Hvað ertu að leita að?
Umsóknir eru afgreiddar rafrænt í gegnum Mínar síður á vefsvæði LL.
Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtidag frá 09:00 til 12:00 g 13:00 til 15:00
Og Föstudaga frá 09:00 til 13:00
Sótt er um sjúkradagpennga á mínum síðum, það þarf að fylgja virkt læknisvottorð. og vottorð frá vinnuveitanda. Skila þarf inn umsóknum fyrir 20. hvers mánaðar.
Tilkynna skal yfirmanni strax ef óvinnufærni er vegna veikinda eða slyss. Ef lögreglumaður kemur ekki til starfa samfleytt í meira en fimm daga skal hann sanna óvinnufærni með framvísun á læknisvottorði. Vinnuveitandi skal endurgreiða kostnað vegna læknisvottorðs. Eftir fjarveru vegna veikinda eða slyss um lengri tíma skal endurnýja vottorð eftir nánari ákvörðun forstöðumanns.
Ef óvinnufærni er samfellt í einn mánuð eða lengur verður að afla og leggja fram starfshæfnisvottorð. Slíkt vottorð er mikilvægt svo unnt sé að sannreyna að starfsmaður geti sinnt starfi sínu með eðlilegum hætti í kjölfar langvarandi veikinda eða slyss. Þannig má lögreglumaður ekki hefja starf að nýju nema læknir votti að heilsa hans leyfi og má jafnframt krefjast vottorðs trúnaðarlæknis stofnunar.
Samkvæmt kjarasamningi er veikindaréttur lögreglumanns sem ráðinn er til starfa á mánaðarlaunum í a.m.k. tvo mánuði eftirfarandi:
Eftir 0-3 mánuði í starfi 14 dagar
Næstu 3 mánuði í starfi 35 dagar
Eftir 6 mánuði í starfi 119 dagar
Eftir 1 ár í starfi 133 dagar
Eftir 7 ár í starfi 175 dagar
Um greiðslur í veikindum/slysaforföllum fer samkvæmt greinum 12.2.6 vegna fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla en grein 12.2.7 eftir fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla. Í fyrra tilvikinu skal auk mánaðarlauna greiða fastar greiðslur svo sem fyrir yfirvinnu, vaktahvata, vakta-, gæsluvakta- og óþægindaálag og greiðslur fyrir eyður í vinnutíma, enda sé um að ræða fyrirfram ákveðinn vinnutíma samkvæmt reglubundnum vöktum eða reglubundinni vinnu lögreglumanns sem staðið hefur í 12 almanaksmánuði eða lengur. Í seinna tilvikinu skal auk launa sem greidd verða samkvæmt grein 12.2.6 fá greitt meðaltal þeirra yfirvinnustunda sem hann fékk greiddar síðustu tólf mánaðarleg uppgjörstímabil yfirvinnu eða síðustu tólf heilu almanaksmánuðina. Í þessum tilvikum skal við útreikning yfirvinnustunda ekki telja með þær yfirvinnustundir sem greiddar hafa verið samkvæmt grein 12.2.6.
Við framangreindan rétt bætist auk þess réttur til mánaðarlauna í 13 vikur eða 91 dag ef óvinnufærni stafar af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi. Þetta getur til dæmis einnig átt við vegna slyss sem verður á beinni leið til eða frá vinnu. Viðbótarrétturinn er eingöngu bundinn við greiðslu dagvinnulauna í allt að þrjá mánuði og kemur til viðbótar ef á þarf að halda þegar dagafjöldinn, sem fylgir veikindaréttinum, hefur verið tæmdur.
Eftir 12 ár í starfi er veikindaréttur lögreglumanns 273 dagar.
Eftir 18 ár í starfi er veikindaréttur lögreglumanns 360 dagar.
Ofangreindur viðbótarréttur í 13 vikur eða 91 dag ef óvinnufærni stafar af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi bætist ekki við hjá lögreglumanni sem starfað hefur 12 ár eða lengur enda litið þannig á að slíkur réttur falli innan 273 eða 360 daga veikindaréttar hans.
Veikindaréttur er talinn í almanaksdögum en ekki vinnudögum. Dagafjöldi launaðra veikinda miðast við hverja 12 mánuði eða 365 daga en ekki almanaksárið. Starfsmaður á því rétt á að halda launum í ákveðinn dagafjölda svo lengi sem veikindadagar hans verða ekki fleiri á hverjum 12 mánuðum eða 365 dögum talið aftur í tímann. Þannig leggjast öll veikindi á síðustu 12 mánuðum saman og dragast frá veikindarétti við upphaf nýrra veikinda. Hið sama á við þegar finna þarf út hversu marga veikindadaga starfsmaður á ónýtta.
Laun samkvæmt veikindakafla kjarasamnings greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa. Við mat á ávinnslurétti lögreglumanns skal auk þjónustualdurs hjá viðkomandi launagreiðanda einnig telja þjónustualdur hjá stofnunum ríkis, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta til af almannafé.
Veikindaréttur tæmdur
Ef lögreglumaður tæmir veikindarétt sinn á vinnustað getur sú staða verið uppi að hann eigi rétt á að sækja um greiðslur sjúkradagpeninga til LL. Skilyrði eru um að veikindaréttur sé fyrst tæmdur á stofnun og að viðkomandi sé að reyna vinna sig til baka til að öðlast starfshæfni að nýju og geta þannig snúið aftur til starfa og batahorfur séu. Samkvæmt reglum styrktar- og sjúkrasjóðs LL geta greiðslur sjúkradagpeninga mest numið fjórum mánuðum. Skila þarf inn til LL með umsókn um sjúkradagpeninga vottorði launagreiðanda um að veikindaréttur sé tæmdur og frá hvaða degi svo er. Einnig þarf að skila læknisvottorði um vinnuhæfni, síðasta launaseðli o.fl. gögnum sem nánar er kveðið á um í reglum styrktar- og sjúkrasjóðs LL. Séu ekki líkur á bata og ætla má að lögreglumaður muni ekki snúa aftur til starfa eru önnur úrræði tiltæk, svo sem að hlutaðeigandi sæki um sjúkradagpeninga, endurhæfingar- eða örorkulífeyri hjá Tryggingastofnun ríkisins (TR), sæki um örorkulífeyri hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, o.fl. úrræði standa til boða. Hægt er að fá greiðslur frá lífeyrissjóði og TR samhliða, hvort sem það eru endurhæfingarlífeyrisgreiðslur eða örorkulífeyrisgreiðslur. Greiðslur TR hafa ekki áhrif á greiðslur lífeyrissjóða svo lengi sem samanlagður lífeyrir, barnalífeyrir, greiðslur TR og/eða aðrar launagreiðslur eru ekki umfram viðmiðunartekjur. Hins vegar gætu greiðslur úr lífeyrissjóðum leitt til skerðinga á greiðslum TR samkvæmt reglum stofnunarinnar. Þá geta einkaréttarlegar tryggingar sem teknar hafa verið og úrræði hjá sveitarfélagi einnig komið til.
Lausn frá störfum vegna endurtekinnar/langvarandi óvinnufærni vegna veikinda/slysa
Ef lögreglumaður er óvinnufær vegna veikinda eða slysa svo mánuðum skiptir á hverju ári um fimm ára tímabil og ekki er skýlaust vottað að hann hafi fengið heilsubót sem ætla megi varanlega, má leysa hann frá störfum vegna heilsubrests. Þegar lögreglumaður hefur verið frá vinnu vegna veikinda eða slysa samfellt launalaust í jafnlangan tíma og þann tíma sem hann átti rétt á að halda launum í fjarveru sinni, má leysa hann frá störfum vegna heilsubrests.
Þegar lögreglumaður er leystur frá störfum á framangreindum grundvelli skal hann halda föstum launum í þrjá mánuði. Um þessi efni vísast einnig til 30. greinar laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Skráning og talning veikindadaga
Samkvæmt 16. grein laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er heimilt að setja upp tímaskráningarkerfi til að fylgjast með því hvenær starfsmenn mæta til vinnu. Samkvæmt kjarasamningi skal halda skrá yfir veikindadaga lögreglumanns við stofnun. Upplýsingar um ávinnslu, afdrátt og stöðu veikindaréttar hverju sinni eiga að vera lögreglumönnum aðgengilegar í Vinnustund.
Starfsfólk á launum í veikindum heldur áfram að ávinna sér veikindarétt. Ekki kemur þó til aukningar eftir að launagreiðslur falla niður í veikindum.
Veikindaréttur er talinn í almanaksdögum. Þá er einnig litið til nýttra veikindadaga síðustu tólf mánuði og miðast talning við það.
Veikindi í orlofi
Starfsmaður sem er veikur á meðan orlofi stendur getur átt rétt á viðbótarorlofi en tilkynna þarf um veikindin án tafar til yfirmanns og framvísa læknisvottorði.
Veikindatími lögreglumanns í fæðingarorlofi telst ekki til veikindaforfalla og á lögreglumaður ekki rétt til launa í veikinda- og slysatilvikum þann tíma.
Hlutaveikindi
Ef lögreglumaður vinnur skert starf að læknisráði og með leyfi forstöðumanns vegna slyss eða veikinda, skal miða greiðslu veikindalauna fyrir dagvinnu við það starfshlutfall sem vantar á að hann sinni fullu starfi.
Lögreglumaður þarf leyfi yfirmanns til að vinna skert starfshlutfall og oft er um að ræða tímabundið ástand. Ákvæðinu er t.d. beitt þegar lögreglumaður hefur verið frá vinnu um lengri tíma og fær aðlögunartíma þegar hann kemur til baka til starfa, með því að vinna skert starfshlutfall í nokkrar vikur.
Starfsmaður getur ekki talist að hálfu veikur og hálfu frískur í orlofi. Fari starfsmaður sem verið hefur í hlutaveikindum í frí telst það að fullu til orlofstöku nema að læknir votti að starfsmaður geti ekki notið orlofs en þá telst fríið að fullu til veikinda
Þegar lögreglumaður er í hlutaveikindum eru veikindi talin líkt og um tvo starfsmenn sé að ræða. Hann fær því laun fyrir það hlutfall sem hann vinnur, en veikindagreiðslur fyrir hitt hlutfallið og dragast þeir frá áunnum veikindarétti hans.
Veikindi barna
Lögreglumaður á rétt á að vera frá vinnu samtals 12 vinnudaga á hverju almanaksári vegna veikinda barna sinna undir 13 ára aldri ef annarri umönnun verður ekki við komið. Þessi réttindi skerða ekki önnur réttindi samkvæmt veikindakafla kjarasamnings.
Samkvæmt 2. grein laga LL er hlutverk og markmið LL að annast gerð kjarasamninga, að sameina alla lögreglumenn, skapa aukin kynni, samstöðu þeirra í barátu fyrir stéttarlegum, félagslegum og menningarlegum hagsmunum, vera í fyrirsvari fyrir lögreglumenn, standa vörð um áunnin réttindi og vinna að bættum kjörum þeirra. Einnig að stuðla að aukinni fagþekkingu og fagvitund lögreglumanna, standa fyrir útgáfu rits um stéttar- og starfsmálefni lögreglumanna, vinna að auknum skilningi almennings á þýðingu lögreglustarfa, vinna að aukinni fræðslu og menningarstarfsemi innan vébanda LL, eiga samstarf og eftir atvikum aðild að öðrum samtökum launafólks innanlands sem utan, svo og einnig að starfrækja líknar- og hjálparsjóð, orlofssjóð, starfsmenntunarsjóð og styrkar- og sjúkrasjóð.
Landinu skal skipt upp í svæðisbundnar deildir (svæðisdeildir) og þeir lögreglumenn sem hafa fasta starfstöð tilheyra þeirri deild sem starfar á viðkomandi svæði.
Hlutverk deildar samkvæmt lögum LL er m.a. að móttaka erindi félagsmanna, vera tengiliður félagsmanna við stjórn LL og vera ábyrg fyrir félagsstarfinu á sínu félagssvæði. Standa jafnframt fyrir kosningu fulltrúa svæðisins og varamanns/varamanna í stjórn LL. Einnig að standa fyrir kosningu fulltrúa svæðisins á þing LL og að tilnefna eða velja trúnaðarmenn á vinnustöðum/starfssvæðum. Þá er það auk þess hlutverk deildar að semja um vakta- og vinnutíma lögreglumanna og standa fyrir kosningu meðal viðkomandi lögreglumanna um vinnutímann.
Samkvæmt lögum LL er hlutverk trúnaðarmanna að vinna úr ágreiningsmálum er kunna að rísa varðandi úthlutun aukavinnu, hvíldartímaákvæðum og öðrum kjaralegum réttindum á vinnustöðvum, sbr. V. kafla laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna, svo sem leita til deilda og eða beint til stjórnar LL.
Samkvæmt 29. grein laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna skal trúnaðarmaður gæta þess að vinnuveitandi og fulltrúar hans haldi kjarasamning og réttur starfsmanna sé í hvívetna virtur, einkum um orlof, vinnuvernd, öryggi og hollustuhætti. Starfsmönnum ber að snúa sér til trúnaðarmanns með umkvartanir sínar. Ber trúnaðarmanni að rannsaka málið þegar í stað er umkvartanir berast eða hann hefur ástæðu til að ætla að gengið sé á rétt starfsmanna eða stéttarfélags á vinnustöð hans af hálfu vinnuveitanda. Komist trúnaðarmaður að þeirri niðurstöðu að umkvartanir eða grunur hafi við rök að styðjast ber honum að krefja vinnuveitanda eða umboðsmann hans um lagfæringu.
Trúnaðarmaður skal gefa starfsmönnum á vinnustöðinni svo og stéttarfélagi, er í hlut á, skýrslu um kvartanir starfsmanna jafnskjótt og við verður komið. Enn fremur gefur hann sömu aðilum skýrslu um hvað vinnuveitandi hafi brotið af sér við starfsmenn og stéttarfélag þeirra svo og hvaða lagfæringar hafi fengist fram.
Trúnaðarmaður á rétt til að rækja skyldur sínar í vinnutíma enda geri hann yfirmanni sínum grein fyrir erindi sínu hverju sinni. Á vinnustaðnum skal honum veitt aðstaða til þess m.a. að eiga einkaviðræður við samstarfsmenn sína, halda með þeim fundi í kaffitímum eða við lok vinnudags, þar sem því verður við komið, veita honum aðgang að síma o.s.frv.