Stofnun ársins 2012 í flokki stærri stofnana (50 starfsmenn eða fleiri) var Sérstakur Saksóknari en þetta er annað árið í röð sem stofnunin er í fyrsta sæti. LL óskar embættinu og starfsmönnum þess innilega til hamingju með titilinn!
Í flokki minni stofnana (20 starfsmenn eða færri) hlaut titilinn Persónuvernd. LL óskar, sömuleiðis, þeirri stofnun og starfsmönnum þess innilega til hamingju með titilinn.
Þær spurningar sem m.a. eru lagðar fram í könnuninni eru eftirfarandi:
-
Trúverðugleiki stjórnenda;
-
Starfsandi;
-
Launakjör;
-
Vinnuskilyrði;
-
Sveigjanleiki vinnu;
-
Sjálfstæði í starfi;
-
Ímynd stofnunar;
-
Ánægja og stolt.
Niðurstöðurnar fyrir þær stofnanir í könnuninni, þar sem lögreglumenn starfa, er að finna hér að neðan.
Lista, með samanburði yfir einkunnir þessara stofnanana frá því í fyrra, má nálgast á heimasíðu SFR hér.
Þar sem nokkur breyting hefur orðið á framsetningu könnunarinnar, frá því í fyrra eru hér að neðan listaðar upp upplýsingar úr heildarlista allra stofnana (þ.e. sæti á heildarlista allra stofanananna), þar sem lögreglumenn starfa, með samanburði frá árinu 2011:
| Sæti 2012 | Sæti 2011 | |
| Sérstakur saksóknari | 5 | 8 |
| Sýslumaðurinn á Sauðárkróki | 7 | 5 |
| Sýslumaðurinn í Borgarnesi | 8 | 121 |
| Sýslumaðurinn á Akranesi | 10 | 30 |
| Lögregluskóli ríkisins | 16 | 7 |
| Sýslumaðurinn á Seyðisfirði | 24 | 124 |
| Sýslumaðurinn á Húsavík | 27 | 42 |
| Sýslumaðurinn á Ísafirði | 49 | 106 |
| Sýslumaðurinn á Hvolsvelli | 53 | 10 |
| Sýslumaður Snæfellinga | 69 | 17 |
| Sýslumaðurinn á Blönduósi | 76 | 58 |
| Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 90 | 107 |
| Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum | 110 | 110 |
| Sýslumaðurinn í á Selfossi | 149 | 70 |
| Ríkislögreglustjóri | 161 | 163 |
| Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 165 | 157 |
| Sýslumaðurinn á Akureyri | 166 | 159 |
| Sýslumaðurinn á Eskifirði | 172 | 165 |
a) sjá hver þróunin hefur verið þ.e.a.s. hvort lögregluembættin eru að bæta sig á milli kannana eða ekki
b) nota niðurstöðurnar í viðræðum við starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins til, eftir atvikum, að leita leiða til að bæta árangur lögregluembættanna í komandi könnunum.