AÐ GEFNU TILEFNI ER RÉTT AÐ ÁRÉTTA AÐ ÞÆR UPPLÝSINGAR SEM HÉR BIRTAST, Á LOKUÐU SVÆÐI HEIMASÍÐU LL, OG VARÐA KJARAMÁL OG KJARASAMNINGSVINNU ERU EKKI ÆTLAÐAR TIL OPINBERRAR BIRTINGAR.

 

Undirbúningur komandi kjaraviðræðna hefur staðið yfir í allnokkurn tíma eða allt frá niðurstöðu starfskjaranefndar 31. þings LL sem haldið var í Stykkishólmi dagana 24. – 26. apríl 2012.  Þær niðurstöður voru svo áfram ræddar á formannaráðstefnu LL sem haldin var í Reykjavík þann 30. apríl 2013.

 

Þá hefur talsverð vinna verið í gangi á vettvangi BSRB með að skilgreina sameiginlegar kröfur aðildarfélaganna t.d. er kemur að staðalköflum kjarasamninga s.s. vaktavinnukaflanum.

Ein af meginkröfum BSRB, sem fram kom á 43. þingi bandalagsins sem haldið var í Reykjavík dagana 10. – 12. október 2012 er stytting vinnuvikunnar í 36 klst. og að auki frekari stytting vinnuviku vaktavinnufólks.  Er horft á þessar kröfur sem lið í samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs og að auki sem sókn til að tryggja frekara jafnrétti.  Nánar er hægt að lesa sig til um þessa þætti í “Stefnu BSRB” og “Ályktunum 43. þings BSRB“.

Þá lagði BSRB áherslu á og mikla vinnu í bætt umhverfi kjarasamningsviðræðna, sem lauk með útgáfu skýrslunnar “Kjarasamningar og vinnumarkaður á Norðurlöndum” í maí 2013.  Stærsta einstaka málið í þessari vinnu er sú einfalda og sjálfsagða krafa að kjarasamningur taki við af kjarasamningi en eins og flestir vita þá hefur staðan, undanfarna áratugi, verið með þeim hætti að oft dregst úr hófi fram að klára kjarasamningagerð sem aftur hefur gert það að verkum að margir mánuðir frá því að kjarasamningar renna út hafa, í sumum tilvikum, dottið niður óbættir til hærri launa.  Þetta hafa lögreglumenn ítrekað fengið að reyna við kjarasamningagerð sína.

 

Þá hafa ýmsir stórir hópar verið að hittast núna á sumar til að ræða sameiginlega aðkomu að kaflanum um vaktavinnumál en þar má t.d. nefna hjúkrunarfræðinga, tollverði, slökkviliðsmenn, lögreglumenn, flugmálastarfsmenn, lífeindafræðinga, ljósmæður, geislafræðinga o.fl.  Tilgangur fundanna er sá að þessir stóru hópar komi saman fram með tillögur að breytingum, lagfæringum og frekari skýringum á ýmsum ákvæðum vaktavinnukaflans, sem í gegnum árin hafa verið að valda misklíð og misskilningi á milli samningsaðila.

 

Til viðbótar því sem að ofan er talið hefur talsverð vinna verið í það lögð að kortleggja ófrágengin mál frá liðnum árum en þar ber einna hæst “vanefndir” af hálfu ríkisvaldsins í tengslum við þá vinnu sem mörkuð var með “Sameiginlegri framkvæmdaáætlun” vegna kjarasamninganna sem gerðir voru árið 2009 undir merkjum “Stöðugleikasáttmála”.

 

Næstu dagar og vikur verða undirlagðir í vinnu við frágang kröfugerðar LL vegna komandi kjarasamninga sem og fundahalda til að samræma vinnuna sem framundan er vegna komandi kjarasamninga.