Landsamband lögreglumanna stendur fyrir fræðslufundi um lífeyrismál þann 10. október.
Fundurinn er ætlaður lögreglumönnum 50 ára og eldri.
Fulltrúar frá LSR – Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins munu fara yfir helstu atriði sem varða lífeyrismál lögreglumanna og svara spurningum fundargesta.
Þetta er gott tækifæri til að fá upplýsingar um réttindi, lífeyri og þau atriði sem mikilvægt er að huga að þegar líður að starfslokum.