Jónas Kristjánsson veður á súðum.
15 maí. 2008
Jónas Kristjánsson veður á súðum á heimasíðu sinni www.jonas.is en þar má m.a. finna neðangreind skrif:
12.05.2008 Ofbeldislöggum fjölgar Ofbeldissinnar hafa flykkzt í lögguna. Hún er athvarf ungmenna, sem annars lentu á glapstigum. Þetta fólk hefur vænisjúkt hugarfar fasista. Það lítur á samfélagið sem lögguna annars vegar og pakkið hins vegar. Fasistarnir blómstra í löggunni í skjóli ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðherra, sem elskar lögguofbeldi í bíó. Fasistarnir vilja komast í sérsveitir, þar sem þeir geta efnt til lögregluóeirða. Gegn heiðvirðu fólki á borð við Amnesty og náttúruvini, Falung Gong og vörubílstjóra. Þeir hafa fengið pipargas og heimta morðvopn, rafbyssur, sem drepið hafa 245 manns. Þeir eru fráleitir. |
11.05.2008 Óskar heimtar morðvopn Mest notaða alfræðirit í heimi, Wikipedia, segir 245 menn hafa verið drepna með rafbyssum frá júní 2001 til júní 2007. Alfræðiritið rekur þessi tilvik í smáatriðum. Taser, framleiðandi rafbyssna, hamast gegn orðspori þeirra. Taser kærir alla réttarlækna, sem telja rafbyssu vera dánarorsök. Því eru tölur um andlát af völdum þeirra of lágar. Ofbeldissinnaðar löggur hér á landi heimta morðvopnið. Fremstur fer Óskar Þór Guðmundsson, sem birtir í Mogganum í dag þýddar erkilygar upp úr áróðursbæklingum framleiðandans. Er um leið svo ósvífinn að kalla andstæðinga morðvopnsins hagsmunaaðila. |
11.05.2008
|