Fréttir

Efnahagsþrengingar nágrannaþjóða

12 nóv. 2008

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB í dag miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 16:00 – 17:30 í BSRB – húsinu Grettisgötu 89.

Á fundinum verður fjallað um hvernig Færeyingar og Finnar brugðust við efnahagsþrengingum á borð við þær sem Íslendingar upplifa nú.

Framsögu hafa Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri.  Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.

Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal.

 

 

Til baka