Fréttir

Annar fundur undur forystu ríkissáttasemjara!

5 okt. 2009

Eins og fram kom í frétt, á þessari síðu þann 12. september s.l, var ráðgert að annar fundur samningsaðila, í kjaradeilu LL og ríkisvaldsins (LL og SNR) yrði haldinn í viku 37 (önnur vika september mánaðar), en ekkert varð af þeim fundi, svo sem fram hefur komið hér.

Nú hefur ríkissáttasemjari hinsvegar boðað til þessa fundar og er ráðgert að hann verði haldinn, í húsnæði ríkissáttasemjara í Borgartúni n.k. miðvikudag 7. október kl. 09:30.

Nánari fregnir af framgangi viðræðnanna verða birtar, eins og fram hefur komið áður, á lokuðu svæði félagsmanna undir liðnum „Laun 09“, sem birtist í rauðum glugga til vinstri á þessari síðu þegar félagsmenn hafa skráð sig þar inn.

Til baka