Lögreglan nýtur afgerandi trausts!
6 okt. 2009
Í nýlegri könnun Markaðs- og miðlarannsókna, sem framkvæmd var á tímabilinu 9. – 14. september s.l. kemur fram að lögreglan nýtur afgerandi trausts í þjóðfélaginu. Þannig segjast 80,9% aðspurðra bera mikið traust til lögreglunnar!
Í sömu könnun kemur fram að einungis um 18% aðspurðra segjast bera mikið traust til Alþingis Íslendinga og 2,9% til bankakerfisins.
Þessi niðurstaða er sambærileg við aðrar slíkar kannanir, sem framkvæmdar hafa verið mörg undanfarin ár.
Frétt þessa efnis má lesa á mbl.is, og visir.is og niðurstöður könnunarinnar má lesa hér.