Fréttir

Ályktun aðalfundar lögreglufélags Austurlands

31 okt. 2009

Aðalfundur lögreglufélags Austurlands, sem haldinn var þann 29. október s.l. sendir frá sér eftirfarandi ályktun:

 

„Aðalfundur Lögreglufélags Austurlands fagnar því að embætti Ríkislögreglustjóra leggi til að sérsveit RLS taki Taser valdbeitingartækið í notkun.  Fundurinn hvetur einnig til að misvel tækjum búnir lögreglumenn á landsbyggðinni, sem löngum stundum starfa einir, fjarri allri aðstoð og leysa oft á tíðum samskonar mál og sérsveit RLS verði einnig búnir þessum tækjum.“

Til baka