Ályktun frá LNV
4 feb. 2010
Á aðalfundi Lögreglufélags Norðurlands vestra var samþykkt svohljóðandi ályktun:
“Aðalfundur Lögreglufélags Norðurlands vestra mótmælir sinnuleysi samninganefndar ríkisins gagnvart samninganefnd Landssambands lögreglumanna. Lögreglumenn hafa verið án kjarasamnings á annað ár og lítið þokast í samkomulagsátt. Lögreglumenn hafa sýnt mikið langlundargeð en þolinmæði þeirra er á þrotum. Við skorum á samningsaðila að setjast niður og ná samkomulagi um nýjan kjarasamning fyrir lögreglumenn. Lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt og þurfa því lögreglumenn að beita óhefðbundnum aðferðum til að leggja áherslu á stöðu sína. Einnig velta lögreglumenn innan LNV því fyrir sér hvort að sinnuleysi viðsemjenda okkar og töf á samkomulagi hafi eitthvað með það að gera að verkfallsrétturinn sé ekki til staðar.“
Fyrir hönd aðalfundar Lögreglufélags Norðurlands vestra
Höskuldur B.Erlingsson formaður