Fréttir

Enn nýtur lögreglan mest trausts!

19 maí. 2010

Í nýlegri könnun, sem Markaðs- og miðlarannsóknir ehf (MMR) hefur unnið kemur í ljós að enn bera flestir Íslendingar mest traust til lögreglunnar en 78,9% aðspurðra í könnuninni sögðust bera mikið traust til lögreglunnar.  Þetta er svipuð niðurstaða og úr síðustu könnun MMR. 

 

Í öðru sæti í könnuninni er Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík í því þriðja.

Það vekur athygli að þeim fækkar sem bera mikið traust til Alþingis Íslendinga en einungis um 10% aðspurðra sögðust bera mikið traust til þess samanborið við 18% í sambærilegri könnun MMR frá því í september 2009.

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér þessa og aðrar kannanir MMR á heimasíðu fyrirtækisins.

Til baka