Fréttir

Stjórn LL mun funda með dómsmálaráðherra

4 sep. 2010

Eitt fyrsta formlega embættisverk nýs dómsmálaráðherra, Ögmundar Jónassonar, hefur verið að óska eftir því við formann Landssambands lögreglumanna (LL) að funda með stjórn LL. 

 

Allt kapp verður lagt á að hægt verði að koma á slíkum fundi við fyrstu hentugleika.

Til baka