Fréttir

STALL, úthlutunarfundur 11.10.2010

11 okt. 2010

STALL fundaði í dag. Fyrir  fundinum lágu tólf umsóknir.  Tíu þeirra fengu fullnaðar afgreiðslu og styrkir samþykktir.  Einni var hafnað þar sem viðkomandi einstaklingur telst hafa fullnýtt rétt sinn á þessu almanaksári og óskað var eftir frekari upplýsingum áður en hægt er að taka afstöðu til einnar umsóknar.  Jafnframt var endurskoðuð ákvörðun frá síðasta fundi og styrkupphæð hækkuð vegna umsóknar þá.  Heildarupphæð styrkja í þetta skiptuð var um hálf milljón.  Styrkir sem veittir voru eru vegna náms í Háskóla, framhaldsskóla, sérskóla og Endurmenntunar Háskólans.  Af þessum tólf umsóknum voru fimm frá konum.  STALL mun næst koma saman 8. nóvember.

Til baka