Fréttir

Lögreglumessan 1. maí!

28 apr. 2011

Hin árlega 1. maí messa Lögreglukórs Reykjavíkur (LKR), í samvinnu við Landssamband lögreglumanna (LL), verður haldin sunnudaginn 1. maí n.k. í Neskirkju í Reykjavík.  Messan hefst kl. 11:00!

  • Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju, þjónar fyrir altari.
  • Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, flytur ræðu.
  • Organisti verður Steingrímur Þórhallsson.
  • Stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson.

LL hvetur alla lögreglumenn, starfsmenn lögreglu, velunnara lögreglunnar og fjölskyldur þeirra að taka þátt í lögreglumessunni og eiga kyrrðarstund saman.

 

 

 

Til baka