Fréttir

Ályktun félagsfundar LFS, 19.09.2011

19 sep. 2011

Félagsfundur Lögreglufélags Suðurlands, haldinn 19. september 2011, sendir frá sér eftirfarandi ályktun:

 

Lögreglufélag Suðurlands mótmælir harðlega lítilsvirðandi framkomu ríkisvaldsins í garð lögreglumanna á Íslandi en lögreglumenn hafa nú verið samningslausir í tæpa 300 daga.

 

 

Lögreglufélag Suðurlands gerir þá kröfu að laun lögreglumanna verði tafarlaust leiðrétt í samræmi við kröfur samninganefndar Landssambands Lögreglumanna.

Til baka