Fréttir

Yfirlýsing frá félagi yfirlögregluþjóna

28 sep. 2011

Stjórn Félags yfirlögregluþjóna lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu löggæslunnar  á Íslandi  í heild sem og kjaramálum lögreglumanna.

 

 

Á undanförnum misserum hefur fjármagn til löggæslu verið skert svo um munar og ljóst að alvarlega er vegið að öryggi lögreglumanna sem og landsmanna allra.  Mannfæð og gjörbreytt vinnuumhverfi vegna aukinnar hörku, skipulagðrar glæpastarfsemi og fjárhagsvanda í kjölfar hruns leiðir af sér aukna hættu á að lögreglumenn verði fyrir árásum í starfi og aðstoð þá ýmist langt undan eða ófáanleg.  Þrátt fyrir þetta er boðuð frekari skerðing á fjárframlögum til löggæslu.

 

Á nýfenginni niðurstöðu gerðardóms eru bæði formlegir og efnislegir gallar og ljóst að um hana getur ekki orðið sátt að óbreyttu.

 

Stjórnin skorar á fjármálaráðherra að ganga nú þegar til viðræðna við fulltrúa Landssambands lögreglumanna og tryggja leiðir til að sátt skapist um kjör lögreglumanna og löggæslu á landinu.

 

f.h. Félags yfirlögregluþjóna

Oddur Árnason formaður

Til baka