Fréttir

Formannskosning, síðasti dagur

29 feb. 2012

Í gær höfðu 312 atkvæði borist á skrifstofu LL, vel innan við helmingur af þeim fjölda kjörseðla sem voru sendir út. Hægt er að skila kjörseðlum inn til kl. 16.00 á skrifstofu LL eða koma þeim í póst í dag, 29. febrúar.

 

Ath. tvenns konar vandamál hafa komið upp. Lögreglumenn hafa ekki lesið leiðbeiningar um frágang til endursendingar og ekki skrifað nafn sitt aftan á umslagið. Síðan hefur það gert í einhverjum tilfellum að lögreglumenn hafa fengið endursendingarumslagið til baka vegna mistaka hjá Póstinum.

Þar sem talning fer ekki fram fyrr en 9. mars er borð fyrir báru til að takast á við það vandamál.

Til baka