Fréttir

Ályktun aðalfundar Lögreglufélags Suðurlands 27. mars 2012

27 mar. 2012

Aðalfundur Lögreglufélags Suðurlands, haldinn á Selfossi 27. mars 2012 sendir frá sér eftirfarandi:

 

Ályktun

Í ljósi aukinnar tíðni verkefna þar sem öryggi lögreglumanna er stefnt í hættu skorar aðalfundur Lögreglufélags Suðurlands á yfirstjórn lögreglumála að tryggja það að öryggismálum lögreglumanna, þjálfun og búnaði verði án tafar komið í það horf sem kveðið er á um í reglum ríkislögreglustjóra.

Til baka